sunnudagur, mars 09, 2008

Þorrablót Íslendingafélagsins í London 1. mars 2008

--fráhrindandi frásögn--

Á laugardagskvöldið var árlegt þorrablót Íslendingafélagsins í London. Við, Arna og BB (Björn og Bjarni) mættum, og líka Ben amerískur vinur okkar Örnu (sem vill meina að hann sé skandinavískari en ég). Það vildi svo skemmtilega til að á laugardaginn átti íslenskur bjór afmæli, ég fagnaði með því að skella einum gylltum víking í mig meðan ég málaði mig. Sá var góður, enda segir máltækið “Það kemur maður í manns stað, en hver kemur í stað víkings?”

Blótið var frekar uppskrúfað og stíft.

Hápunktur skipulagðar dagskrár var klárlega þegar Alda tróð upp. Hún tók tvö lög, ekki sín eigin reyndar.

Ég stóðst ekki freistinguna að fá mynd af mér með Kolbanum. Held það sé óþarfi að ræða það eitthvað frekar.
Aðalfjörið byrjaði ekki fyrr en í eftirpartýinu. Við Arna vorum eitthvað ósáttar við að fara að sofa klukkan 5 um morguninn, svo við slepptum því bara. Við náðum okkur í bjór og fórum í common-herbergið í húsinu okkar. Þar var snakk, við borðuðum snakkið. Stuttu seinna vorum við búnar að ná í tvær tölvur, ipod, meiri bjór, klink í nammisjálfsalann og eyddum næstu klukkustundum að syngja eins hátt og við gátum af mikilli innlifun með stórgóðum íslenskum lögum. Afgan hans Bubba var sirka þriðja hvert lag sem við tókum. Inn á milli ræddum við ýmis mikilvæg málefni af jafnmikilli innlifun og við sungum. Klukkan 8 um morguninn, fengum við gest. Ben, sem hafði komið með á blótið en farið miklu fyrr heim, var vaknaður og kominn til að nota kaffisjálfsalann. Hann var byrjaður að læra. Við tókum hann í smá kennslustund í íslenskri tónlist, sungum til dæmis lagið ‘Bjorn, and other less matured men’ með ‘New Danish’ fyrir hann. Hann hristi bara hausinn og hló að okkur. Seinna um morguninn kom skúringafólk að þrífa common-herbergið. Skúringafólkið, spænskumælandi par á sextugs aldri, glotti við meðan það ryksugaði í kringum okkur og henti tómum bjórdósum. Ég gleymi að segja frá ópalinu, sem við ákváðum að ná í um 8 leytið, ópal er gott. Við fengum meiri félagsskap, það kom niður strákur að læra, honum sagðist vera alveg sama þó við værum að spila háværa tónlist og dansa, sem við gerðum til klukkan 10.

Conclusion: lélegt blót bætt um með góðu eftirpartýi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flottur Kolbinn og tryllt eftirpartý!
Mér sýnist að í London komi 3 menn í manns stað. Þarf tvo til að ná BB og svo einn Ben til að fullkomna þrennuna...

Þura sagði...

Já Beggi minn, það var mikið pláss sem þurfti að fylla með Béum.

(hei vissirðu að B er uppáhaldsbókstafurinn minn?)