miðvikudagur, mars 07, 2007

Fyndin ?

Stundum hlæ ég rosalega mikið að einhverju sem ég sjálf skrifa á msn. Er kannski í vinnunni, sit ábúðafull við tölvuna, þegar allt í einu ég ýti stólnum frá tölvunni og held um magann í hláturskasti. "Gleymdirðu aftur að taka lyfin þín?" spyr Beggi stundum. Ég á erfitt með að svara, hristist bara í ankannalegum hláturskrampa. Eftir að versta hrinan er liðin hjá þá segi ég kannski "Nei, hahahaha, ég var bara að segja fyndið á msn" Þá hristir Beggi hausinn, hækkar í tónlistinni og fer aftur að vinna. Ég lít aftur á msn samtalið og les það sem var svona brjálæðislega fyndið mínútuna áður og það er kannski bara:

Þura says:
eins og hann væri rútubílstjóri

Fyndin ? *hristi hausinn, þurrka vota vanga, fer að vinna*

5 ummæli:

Orri sagði...

Nenniru að spyrja Begga fyrir mig hvernig lyf er hægt að taka gegn hlátri?

Þura sagði...

can do...

Nafnlaus sagði...

WHAT! Hvað er þetta?

http://www.youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU

Nafnlaus sagði...

þú ert svo mikið æði....hi hi hi

Þura sagði...

Orri: ég spurði Begga en ég held að spurningin hafi ekki náð í gegn um síuna hans.

Helena og nafnlaus: what ?