föstudagur, ágúst 24, 2007

10 atriði sem benda til þess að bíllinn þinn sé OF gamall:

1.Þú notar báðar hendur til að setja í bakkgír
2. Þegar miðstöðin er komin í gang ertu vanalega komin(n) á áfangastað
3. Þegar fólk biður um far hjá þér segir það „sendu nú gullvagninn að sækja mig...!”
4. Þegar þú svínar á fólk er hrópað á þig „Hei afi / amma !”
5. Stýrið er svo þungt þegar bíllinn er í 1. eða 2. gír að þú forðast götur sem hafa lægri hámarkshraða heldur en 50 km / klst
6. Það eru göt í gólfinu og þú biður farþega sem sitja í afturí stundum um að hlaupa með
7. Þú nýtir þyngdaraflið til jafns við pedala í akstri
8. Þú mundir kyrkja David Bowie ef þú hittir hann því kassetta með honum er búin að vera föst í kassettutækinu í bílnum í 8 ár
9. Þú mundir kyssa David Bowie ef þú hittir hann því kassettan er búin að vera biluð síðustu 5 árin
10. Númerið er hvítir stafir á svörtum grunni og byrjar á Ø

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hann er ekkert of gamall. Hann er bara með karakter. Ég seldi minn í vikunni. Mér líður eins og ég hafi selt úr mér sálina :(

Þura sagði...

Vá trúi því... sniff.

Það er erfitt að selja vini sína.