mánudagur, nóvember 06, 2006

Fallega fólkið með fallega hárið

Hver segir svo að Bretar séu ekki falleg þjóð?!

Þessi þrjú hitti ég á skemmtistað í London á dögunum. Ég horfði svo mikið á hárið á stráknum að ég varð að fá að taka mynd af þeim. Eftir á kom dökkhærða stelpan aftur til mín og spurði hvers vegna ég hafði tekið myndina. Ég lýsti yfir aðdáun minni á hárinu þeirra allra og það tók hún strax gott og gilt.

Hún hlýtur að fá svona athugasemdir oft.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var akkurat á Grensás áðan og sá þessa líka svaka skutlu á flettispjaldinu.... kannaðist eitthvað við hana en áttaði mig ekki hvaðan, held að hjálmurinn hafi vilt um fyrir mér. En nú veit ég að ég þekki einhvern frægan.

Þura sagði...

Ehe, aha, já akkurat... núna bíð ég við símann eftir að tilboðum rigni inn.