laugardagur, mars 25, 2006

Ég fór í vísindaferð í gær, þetta var næst síðasta vísindaferðin í... tja óráðinn tíma. Núna kominn tregablandinn fílingur í útskriftarliðið, 3 ára vísindaferðatímabil að líða undir lok. Svo er líka kominn opinber listi yfir topp vísindamenn, þ.a. það er keppni. Í gær var ferðinni heitið í Straum Burðarás fjárfestingabanka, góð ferð.

Verð að segja að það er ekki oft sem ég er búin að taka 4 skot af ópal fyrir klukkan 7 um kvöld.

Eftir vísindaferðina var 3. árs partý hjá Jóhönnu, alveg eðal kvöld. Svona á þetta að vera.

2 ummæli:

. sagði...

Vá hvað þetta var gaman... verðum að endurtaka leikinn hjá Söru um næstu helgi :)

Þura sagði...

Ekki spurning :) þetta verður rosalegt