sunnudagur, september 28, 2008

Blogg?

Ekki í dag, en það er á dagskrá.

Ég er að reyna að nýta fríið mitt á Íslandi eins vel og ég get. Það felur í sér að liggja uppí sófa (en ég hef ekki haft aðgang að sófa síðustu 12 mánuði), borða krækiber og lesa / horfa á eitthvað.

Ásamt krækjuberja-sófa-áhorfinu er ég líka að skipuleggja tveggja landa ferðalag. Í öðru landinu fæ ég að hitta Svanhvíti, sem ég hef ekki hitt síðan í desember 2007. Kallaðu mig Té...

Seinnipartinn í október er möguleiki á ég lífgi eitthvað upp á þetta blogg. En í dag, ekki sjens.

2 ummæli:

Svanhvít sagði...

Desember 2007! Kræst. Svo þú ert ekki búin að sjá þriðja brjóstið sem er vaxið á mig og rófuna. Við höfum um margt að tala.

Þura sagði...

Já það hljómar lengra þegar maður segir ártalið með ;)

Jú bet luv