sunnudagur, júní 03, 2007

Ekki bara kaffi

Ég fór á kaffihús um daginn. Ég mætti á undan vinkonu minni svo að ég pantaði mér kaffi latte og settist niður með tímarit.

Stuttu seinna kom afgreiðslustelpan með kaffið til mín. Í froðunni var súkkulaði-hjarta.

Þú færð með hjarta.

Sagði stelpan.

Ég sagði takk og drakk latte með hjarta.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaf hún þér síðan númerið sitt?

Þura sagði...

Reyndar bjóst ég við því næst... en neibb.