- Mamma mia! klikkar ekki, sérstaklega ekki með mömmu miu!!!
- Það skiptast á skin (skyn)* og skúrir hér í Lundúnum. Í alvöru, einn daginn er rigning og þann næsta sól og bongóblíða.
- Pundið er komið í 166 krónur stykkið, þá fer 2.88 punda hreint bruggaður samuel smith að vera ansi dýr...
- Ég er með póstkort af ísbirni uppi á vegg... nei bíddu það er af kind, ég gáði ekki nógu vel**
- Áhugasamir athugið: önnur ársfjórðungsskýrsla bjórdrykkju er væntanleg, um leið og dagar annars ársfjórðungs verða taldir (með fyrirvara á 'um leið' & það er reyndar ekkert erfitt að telja daga)
**Tilvitnun í frétt sem ég las á mbl.is***
***Þessi setning gæti verið vitlaus; vísa aftur í þéttofinn vef sem er að spinnast í kringum ástæður stafsetningarhæfileikaleysis og setningauppbyggingarvankunnáttu mína, þ.e. mbl.is að kenna****
****Sama og ***
2 ummæli:
Pundið komið í kr. 166/ pundið?
já hvert pund kostar sem sagt 166 íslenskar krónur.
Er ég í ruglinu?
Skrifa ummæli