mánudagur, júní 30, 2008

Aðgerðalistinn

Á to do listanum mínum er eftirfarandi:

  • Gera to do lista

Veit ekki alveg hvort ég nái að framkvæma nokkuð af þessum lista á morgun (nema ég hafi verið að klára það akkurat núna). Veðrið á að vera gott:

(tekið af veðursíðu BBC)

Og ég lít út eins og svissneski fáninn (ef að litirnir í svissneska fánanum væru 'mjólkurhvítt' og 'pulsurautt') svo ég verð eitthvað að vinna í því. Já og auðvitað verkefninu líka.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohh.. ég trúi ekki ennþá að þú hafir farið til Zürich á meðan ég var í burtu..

Þura sagði...

ohh.. ég trúi ekki ennþá að þú hafir verið í burtu meðan ég var í Zürich..