sunnudagur, nóvember 04, 2007

Halloween partý

Í gærkvöldi var hrekkajvökupartý í húsinu sem ég bý í. Klukkan 6 um kvöldið (kl 18 sko) sagði Arna við mig að við yrðum eiginlega að mæta í búningum, oh crap ekkert búningadót var tekið með til London. Ég ákvað að fara í standard-grímubúninginn minn: Star Trek karakter. Að þessu sinni varð fyrir valinu Lieutenant Commander Jadzia Dax úr Deep Space Nine. Þekktist ég: NEI. Þetta var þó einhverskonar búningur.
Arna hætti við að vera kisa og varð djöfull í staðin, en þar sem hún átti kisu-skott þá var hún djöfull með skott:
Við hófum kvöldið á því að fara út að borða, ég, Arna og Bjössi. Íslendingarnir þrír í OR (og svo kvörtum við yfir því að Grikkirnir tali bara við aðra Grikki á grísku). Bjössi var George Clooney, og þar sem hann býr ekki í Sidney Webb og þekkir engan í húsinu nema okkur kynnti hann sig sem George. Hér erum við, Jadzia Dax, she-devil with a tail og Clooney:
Við mættum svo í partýið, og það voru ekkert voðalega margir í búning og það voru ekkert voðalega margir í partýinu heldur. Plötusnúðurinn, hann var trylltur. Svalleikinn draup af honum allt kvöldið:
Fámenni partýsins kom reyndar ekki að sök. Eins og Arna orðaði það þegar hún var að tala við norsku stelpuna 'We are Icelanders, we like to be few and good' Setningin er fyndnari í ljósi þess að útlendingum finnst þrjúhundruðþúsund manns vera hlægilega fámenn þjóð.

Þegar við Arna vorum greinilega aðeins of uppteknar við að taka sjálfsmyndir, eins og þessa:
Þá eignaðist Bjössi nýjan vin. Þegar við komum til baka, dró hann okkur voða spenntur að kynna okkur fyrir gaurnum. Hei stelpur, þið verðið að koma að hitta nýja pakistanska vin minn!!! Gaurinn sat á barstól, en þegar við komum stóð hann upp... eða niður. Hér eru félagarnir:
Hér er mynd af mér, Örnu og gaurnum sem líkist hverjum?

Hér eru litlu pakistönsku stelpurnar sem ég bý með, þær eru voða krúttlegar:


Já semsagt til að taka saman, fínt partý og eftirpartý og all is well

5 ummæli:

Unknown sagði...

Náunginn á næstsíðustu myndinni er eflaust fyrirmyndin af lógói Nörds, félags tölvunarfræðinema við HÍ: www.nord.is

Þura sagði...

Hahaha góð tillaga, en ekki alveg það sem ég hafði í huga.

Hákon sagði...

Ég hélt fyrst að þú værir kona með máluð vínber á sig, en sé núna að þetta er snilldar Jadziu Dax gervi :)

Orri sagði...

Ég sá vúlkana á sirkus á laugadaginn (veit ekki hvort það hafi verið halloween eða eitthvað)...

Þura sagði...

Hákon: haha, einn strákur spurði líka hvort ég væri fulg...

Orri: Ertu með númerið hjá honum? (fyrir Jadziu sko ekki mig)