Planið "no sleep in Rome" gekk ágætlega, iðkaði líka svokallað turbo-sleeping þar sem maður sefur "öflugt" í 3,5 tíma í staðin fyrir að sofa eðlilega í 8 tíma. Allavega vaknaði ég snemma morguninn eftir árshátíðina til að fara í skoðunarferð í Colosseum. Ég, Beggi, Guðrún og Tryggvi fórum á mis við restina af hópnum og áttum fínan fyrri part dags í Kólóseum og þar í kring. Hér er Beggi með húfuna fyrir framan Colosseum:

Innan í Colosseum, það er búið að gera við hluta af gólfinu en lengra frá sjást gryfjurnar sem dýrin og skylmingaþrælarnir voru geymd í áður en þau voru látin berjast:







Minnisvarðarnir voru sumir svo svakalegir að þegar leið á daginn var maður hættur að meðtaka umfangið.
Um hádegisleytið stungum við skoðunarferðina af og tilltum okkur undir sólhlíf á veitingastað við Blómatorgið, Piazza Campo dei Fiori. Eftir mat og bjór og ís var kominn miður dagur. Afgangurinn af deginum fór í að rölta um Rómarborg og tjilla.


t-r-l

Um kvöldið fórum við, krakkarnir sko, saman út að borða. Tókum leigubíl í Trastevere hverfið þar sem margir góðir veitingastaðir eru. Við vorum dáldið mörg og skiptum okkur niður á nokkra veitingastaði. Seinna um kvöldið hittumst við á bar. Bar góður já. 

Síðan upphófst mikil leit að skemmtistað sem var opinn lengur en til 1 því klukkan var að verða. Eftir að hafa spurt fjölda fólks og fengið mikið af misskiljanlegum leiðbeiningum komumst við að því að einu opnu diskótekin í Róm voru í hverfi sem heitir Testacio og var ekki í göngufæri við hverfið sem við vorum í.
Þá var að næla í leigubíla fyrir um 20 manns. Það var einu sinni ekki auðvelt að ná í einn leigubíl. Eftir mikið labb, mikla bjórdrykkju úti á götu og margar símhringingar komum við öll saman á diskótekinu "Caffe Latino". Það kostaði 10 evrur inn fyrir stelpur en 15 fyrir stráka, en með fylgdi drykkur á barnum. Mitt val var tekíla. Enda var ég fersk:

Snilldartaktar voru sýndir á dansgólfinu og allir mjög reiðubúnir að fríka út, enda loksins tími og staður. Siggi og Íris fengu sér vel blandaða mojito:
Sá sem stóð sig best á dansgólfinu var reyndar ekki í okkar hóp, en við kölluðum hann Jesú:


Jens og Ása pósuðu:
Sara og Beggi stældu myndina af sköpun Adams sem er í loftinu á Sixtínsku kapellunni, ég veit ekki alveg hvort þeirra er Adam og hvort er guð:
Klukkan 3 hækkaði verð á drykkjum, og fólki fækkaði mikið á staðnum. Við fórum ekki fet. Upp úr 4 yfirgáfum við þó staðinn nauðug / viljug og leit að leigubíl hófst aftur. Kvöldið endaði hjá mörgum á stuttu stoppi í hekl-eftirpartýi:




3 ummæli:
Eg er feiminn aðdáandi....mjög feiminn og hlédrægur
Feiminn og hlédrægur... sem notar orð eins og "hánkar" ? Hummm
Jú jú....það er orðið. "Inn" að nota það í dag....Eg er Hánkur dauðans og bara fyrir þig
Skrifa ummæli