fimmtudagur, desember 14, 2006

Bleikur bleikari bleikastur...

Tími á smá ekki-bull.

Í síðasta mánuði var haldinn þemadagur í vinnunni minni (sem ég og hin stelpan ráðskuðumst með að vild). Þemað var bleikur litur. Allir starfsmenn voru hvattir til að mæta í bleikum fötum eða vera með bleika aukahluti þennan dag (föstudaginn 3. nóv). Þátttakan fór fram úr björtustu vonum, af tæplega 70 starfsmönnum voru það bara ca. 5 sem sýndu ekki lit (þ.e. bleikan). Á myndinni eru t.d. ég og Góli í okkar "gerfum". Nokkrar fleiri myndir má sjá hér.


Þar sem skriðþunginn af bleiku bylgjunni var gríðarlegur var ákveðið að nýta tækifærið til að styðja gott málefni. Fyrir valinu varð að sjálfsögðu Bleika slaufan, árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands um brjóstakrabbamein.

Hlekkjaðar eru fréttir Krabbameinsfélagsins og AV um allt bleikt.

Moral of the story... það er hægt að gera ýmislegt skemmtilegt, sem leiðir af sér ýmislegt gott.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snilldar framtak! En veistu hvað? Ég geng aldrei með úr svo að fyrir nokkrum árum keypti ég ódýrasta úrið sem ég fann á bensínstöð til að vera með í prófum. Það vill svo skemmtilega til að það er bleikt og heitir Cutie :) Það hefur reynst mér mjög vel í prófum. En því miður steingleymdi ég að mæta með það á Bleika daginn og núna er það búið að gefa upp öndina. Nánar um þá sorgarsögu á http://blog.central.is/gulurkisi

Þura sagði...

What...

ókei les söguna og geri síðan athugasemdir við þetta komment þitt.

merly sagði...

Mig langar að deila dásamlegu vitnisburði mínum um hvernig ég kom aftur til eiginmannar míns í lífi mínu, ég vil segja fólki að það sé raunverulegt stafrænt á netinu á netinu og er öflugt og einlægt. Hann heitir DR PEACE, hann hjálpaði mér nýlega að hafa sambandið mitt sameinað með eiginmanni mínum sem varpaði mér. Þegar ég snerti DR PEACE kastaði hann ástfangelsi fyrir mig og eiginmanninn minn sem sagði að hann hefði ekkert að gera með mér, kallaði mig og bað mig. Fyrir alla sem lesa þessa grein og þarfnast hjálpar, getur DR PEACE einnig boðið upp á alls konar hjálp, svo sem að sameina hjónaband og samband, lækna alls konar sjúkdóma, málaferli, meðgöngu frásögn, við erum nú mjög ánægð með okkur sjálf. DR PEACE gerir honum grein fyrir hversu mikið við elskum og þarfnast hvert annað. Þessi maður er alvöru og góður. Hann getur einnig hjálpað þér að endurheimta brotið samband þitt. Ég hafði eiginmanninn minn aftur! Það var eins og kraftaverk! Engin hjónaband ráðgjöf og við erum að gera mjög vel í kærleika líf okkar. Hafðu samband við þennan mikla mann ef þú átt í vandræðum með sjálfbæran lausn
með tölvupósti: doctorpeacetemple@gmail.com
WhatsApp: +2348059073851
Viber: +2348059073851