mánudagur, apríl 17, 2006

Ég var að horfa á Reality Bites með Winonu Ryder. Þar segir hún á einum stað þegar hún er sem dýpst sokkin í sjálfsvorkun og volæði að hún hafi ætlað að verða eitthvað fyrir 23 ára aldur. Það þykir mér merkilegt, þótti 23 ekki ungt árið 1994 ?

Það lítur ekki út fyrir að ég nái að verða eitthvað áður en ég verð 23 ára, hef allavega bara 3 daga til stefnu. Jæja, best að fara að reyna...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu orðin að einhverju?

Þura sagði...

Ég veit það ekki, ég á eftir að gá.